Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Skaði að komast ekki

Sælar allar saman!  Ólöf hér, það er greinilega stuð á sumum...ég kemst því miður ekki norður því ég er að fara til Frakklands eftir helgi. Ég er sem aðrar með sama kall (hugsið ykkur hvað verður gaman að blogga eftir 10 ár) og við eigum Úlfar sem er 6 ára og Palla sem er 4 ára. Við búum fyrir sunnan  og erum með innflutning á vínum frá Frakklandi: www.vinekran.is .  Ég er að taka master í þýðingafræðum í Háskólanum og hef sem aldrei fyrr gaman af því að læra heima.

Skaði að komast ekki!..en eru einhverjar til í hitting hér fyrir sunnan?

 

  


Enn af því sama...

Sælar kæru bekkjarsystur (og aðrir MA-ingar)

Það er með mig eins og svo marga að litlar breytingar hafa orðið á lífi mínu síðan við hittumst síðast. Hmm ég er greinilega argasta íhaldssál :)  Ég er enn að starfa í ættfræðideild ÍE, í sambúð með sama Skagfirðingnum en búin að bæta við barni síðan við hittumst síðast þannig að nú eru þau tvö, Lárus Björn f.2002 og Sigrún Efemína f.2005 (dætur okkar Önnu Siggu eru því nöfnur). Svo er ég komin í kennsluréttindanám við KHÍ og klára það um áramótin. Ég stefni á það að verða kennari í framtíðinni - það eru náttúrlega launin sem heilla ha ha ha Grin

Ég er búsett í Borgarhverfi í Grafarvoginum en það er það næsta sem maður kemst sveitasælunni í henni Reykjavík, kann afskaplega vel við mig þar. Ég mæli því eindregið með "úthverfi og akstri" Hjördís mín - þó aksturinn geti verið hreinasta pína á stundum :)

Kveðja

Svava Guðrún

 


Sælar gellur!

Góðan og blessaðan daginn, Siva hér.  Gaman að sjá ykkur á svæðinu eins og sagt er Smile

Ég sé nú ekki betur en að hér skrifi bara meðlimir 4.G heitins, en þar sem Þórdís sendi mér leyniorðið ætla ég að troða mér hér inn á milli.

Púkinn í mér hlær pínulítið yfir fréttum að ykkur sem segja "sami karl, sömu börn og sama vinnan",  ekki misskilja mig, mér finnst það sko góðar fréttir, en það minnir mig eitthvað svo óendanlega mikið á hinar fastbundnu hefðir skólans sem við vorum í  - bannað að breyta til, alltaf að halda í hefðirnar !!

Ég hef nú varla séð ykkur undanfarin 15 ár svo frá þeim tíma hefur mitt umhverfi breyttst.  Ég hef búið á Sauðárkróki undanfarin 9 ár, er sjúkraþjálfari á míns eigins stofu og náði mér í skagfirskan sveitapilt sem hefur blessunarlega engan áhuga á hrossum (og þeir eru nú ekki margir hér umslóðir sem gæddir eru þeim hæfileika).  Hálft parhús en engin börn (nei stelpur, ég valdi mér mann sem er algjörlega sjálfbjarga og telst því ekki til barna).  Helstu áhugamál eru leikfélagið, ferðalög, útivera og góður matur - ég ætti að vera fegurðardrottning!  Nei, þetta með góða matinn spillir eitthvað lítillega fyrir því, þyrfti að skipta því út fyrir vinnu með börnum og þá myndi kórónan bara koma svífandi ....

Hvernig skrifar maður annars breyttst?? Breyst?? 

 


Kaffi Akureyri

Það er búið að benda á að það er mun meira pláss á Kaffi Akureyri og líklegra að fólk rekist þangað inn svo við (eða ég þar sem engin mótmæli hafa verið gerð) höfum ákveðið  Kaffi Akureyri kl 9 á laugardaginn sjáumst sem flestar þar.

kv Þórdís


Frá Önnu Siggu

Hæ og hó bekkjarsystur mínar

 Af mér er allt gott að frétta. Ég er ennþá gift sama kallinum en á eitt frekar nýtt barn. Nýja barnið er kvenkyns og fæddist sl. október en ,,gamla" barnið er orðið átta ára. Ég kenni ennþá í MA.

Ég mæti galvösk á Bláu könnuna ef ég fæ barnapössun. 

Bestu kveðjur

 

Anna Sigga


Sama hvar við verðum

Jæja 4.G.

4 dagar til stefnu, 5 búnar að bóka sig. Skilst mér. Mér er sama hvar við verðum, ég reyni að redda pössun og kem.

Nenni ekki ævisögunni í augnablikinu, er sú sama og síðast, þ.e. sami kall og sömu synir. Sama vinna. Sama sagan.

 Systa


Halló Akureyri

10 ára afmælisvefinn má finna hér: http://www.ma.is/stud92/

Okkar bekk vantar reyndar, sennilega af því að sá partur af síðunni var vistaður í kerfi KHÍ, eða eitthvað álíka. 

Ég fór til Svíþjóðar stuttu eftir síðasta afmæli og kom heim ári síðar.  Hef síðan verið að löffast.  24. nóvember 2005 kom Bríet Magnúsdóttir í heiminn (http://hjordisarogmagnusdottir.blogspot.com) Hún var léttburi og fyrirburi og lífið hefur ekki allt verið dans á rósum fyrir hana, en nú er þetta allt að koma.  Við búum ennþá í litlu 60 fm kjallaraholunni sem við keyptum þegar ég kláraði HÍ, sem þýðir að við búum í einni stórri leikfangahrúgu.  Erum alltaf á leiðinni að flytja en eigum í mikilli tilvistarkreppu með hvert eigi að flytja innan höfuðborgarsvæðisins.  Úthverfi og akstur vs. miðbær og rónar.  Höllumst í augnablikinu að úthverfi og akstri.


15 ára og samt finnst mér stutt síðan

Jæja það er bara ótrúlegt að 15 ár séu liðin. Hér með skora ég á ykkur að fara og finna gamlar myndir og skanna inn á þetta blogg. Og svo finnst mér að við ættum að dreifa þessu á alla sem við þekkjum úr árgangnum og heyra meira frá liðinu.

Annars er það helst að frétta að ég var að ferma í apríl Ásta skvísa orðin 14, Guðný að verða 10 ára og Úlfur 9 ára. Ég er nýlega hætt hjá Icelandair og farin að vinna í sölu-og markaðsdeild Gutenbergs prentsmiðjunnar. Bý í laugardalnum og blogga reglulega http://thordis-arnardottir.blogspot.com/. Á sama mann he he að maður þurfi að taka það fram hann Ingó minn.

Látið nú í ykkur heyra.

kv Þórdís


Nýjustu fréttir

Valdís Vera ritar;

 Svo ég ríði á vaðið með fréttir þá á ég tvær dætur núna, Laufeyju Mattíönu f. í október 2000 og svo Steinunni Mardísi f. í október 2005. Við keyptum íbúð í október og fluttum inn í desember og erum staðsett í Jörfabakka í Neðra - Breiðholti. Ég vinn sem deildarstjóri á leikskólanum Fálkaborg (tók við stöðu mömmu Kristínar í bekknum okkar ) sem er í 5 mínútna göngufjarlægð frá heimilinu. Ég kláraði líka heimilisfræðikennarann í október sl. og hef kannski hugsað mér að vinna við það einhvern tímann á næstu árum. Hjá mér býr Atli Már pabbi Steinunnar sem er sýningarmaður hjá Senu og sér einnig um ráðstefnur í Háskólabíó ásamt öðrum hjáverkum. Hann á tvo syni og býr annar þeirra hjá okkur líka. Kannski ekki spennandi fréttir en ég hef sem sagt aðallega fengist við barnauppeldi, nám og matargerð sl. ár. Svo er ég alltaf að þjóna með svona annað slagið til að hvíla mig á barnabransanum....

www.barnaland.is/barn/909 og www.barnaland.is/barn/31016

Væri gaman að fá fréttir af ykkur?

Bestu kveðjur

Veran


« Fyrri síða

Höfundur

MA stúdentar 1992
MA stúdentar 1992

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband